Alma Ýr og Gaukshreiðrið.
11. febrúar 2008 klukkan 21:30
Góðann daginn. Ég fór áðan og heimsótti Ölmu Ýr litlu frænku mína, hún er orðin 4 mánaða ótrúlegt en satt!
Ég tók myndavélina með og tók nokkrar myndir og Hilmar tók líka myndir af okkur saman og ég er búin að skella nokkrum myndum hér inn á síðuna. Alma Ýr stækkar og stækkar og er alltaf jafn sætust að sjálfsögðu. Gaman að sjá breytinguna á henni í hvert skitpi sem maður sér hana, fékk að sjá hvað hún er orðin rosa dugleg að liggja á maganum, er orðin rosa klár að halda haus og skemmtilget að sjá hvernig hún er farin að vera meira athugul og fylgjast með öllu í kringum sig og horfir beint í augun á manni. Hélt á henni heillengi án þess að hún kvartaði og það fannst mér líka rosa gaman
Ætla reyna vera sem duglegust að hitta hana, sér í lagi svo hún þekki mann nú almennilega og maður geti kannski einnhvern tímann fegnið hana lánaða eða bara passað hana ef þess þarf
Svo eru nú bara 3 mánuðir í litla frænda, hlakka líka rosalega til að sjá hann og knúsa hann.
Helgin var nú frekar róleg en hápunkturinn var án efa frumsýningin á Gaukshreiðrinu sem Halaleikhópurinn sýndi í sal Halans í Hátúni 12. Alveg snilldar sýing og frábærlega leikið, bæði mjög raunverulegt, sorglegt og fyndið í senn. Leikmyndin var alveg snilldarleg. Fyrir þá sem ekki vita hvað Gaukshreiðrið er þá fjallar það um geðsjúkrahús og lífið þar, semsagt líf sjúklinganna sem þar dvelja. Þetta hefur áður verið sett upp sem leikrit hér á landi en einnig kom þetta út sem mynd fyrir nokkrum áratugum. Okkur var boðið á sýninguna því Hössi tók myndir fyrir þau en við ætluðum okkur nú alltaf að fara á þetta síðar. Við fórum svo einnig aðeins í frumsýningarpartýið og skemmtum okkur vel þar enda góð stemning eftir velheppnaða frumsýningu á frábæru verki. Ég mæli eindregið með þessari sýningu við alla sem hafa áhuga á góðri skemmtun og frábæru verki. Hægt er að nálgast allar upplýsingar á heimasíðu Halaleikhópsins á slóðinni www.halaleikhopurinn.is
Segjum það gott í bili. Aðalbjörg Gunnarsdóttir - Sem elska Ölmu Ýr og Gaukshreiðrið.

Aðalbjörg Gunnarsdóttir