Komin í frí- yndislegt :)
Aðalbjörg Gunnarsdótttir- sem elskar að vera í fríi
Innan við sólahringur í frí :)
Halló, já ansi stutt í fríið eða eins og titillinn gefur til kynna, innan við sólahringur
Akkurat núna eru hámark 15 tímar í frí, líklegast bara 14. (15 ef ég nýti aukatímann minn en 14 miðað við venjulegan tíma). Annars er lesturinn fyrir þetta próf ekki búin að vera sem verstur enda efnið áhugavert! En ég er semsagt að fara í próf í áfanga sem heitir fötlun og samfélag. Persónuleg reynsla af málaflokknum er e.t.v. stor hluti af því hve áhugavert mér þykir efnið, gaman að fá ný sjónarhorn og læra jafnvel eittvað sem maður vissi ekki af eigin reynslu, þó maður teldi sig nú vita mikið! Seta í þessu námskeiði hefur líka aukið áhuga minn á því að starfa jafnvel á þessum vettfangi í framtíðinni, en fram að þessu hefur það ekkert sérstaklega heillað mig umfram annað enda fjölmargt í boði að loknu félgasráðgjafanámi. Ég er alveg gífurlega spennt að komast loksins í frí eftir þessa miklu námstörn síðastliðinn mánuð og geta loksins slappað af og gert það sem mér langar til að gera!!! Mér dettur ýmislegt í hug t.d. hlakka ég rosalega til að geta kúrt ótakmarkað með Hössa, horft á tv eða verið á netniu án þess að hafa ákveðinn tímaramma sem segir að ég verði að hætta til að fara læra, að geta loksins farið í bíó, út að borða, skellt mér í smá verslunarleiðangur, hitt vini, farið og knúsað Svanhildi litlu frænku og hitt alla hina þar, knúsað litla frænda sem aðeins nokkrir dagar eru í (4 dagar samkvæmt settum degi) o.s.frv. Já spennandi og notarlegir dagar framundan. Ætli ég láti þetta ekki duga í bili, skrifa fljótlega og segi frá fyrstu dögum frísíns og mögulega fréttum af litla frænda. Aðalbjörg Gunnarsdóttir - sem er alveg að komast í frí ![]()
Brálað að gera en styttist í frí :)
Fyrir utan að hlakka til frísins er spennandi dagur framundann, þ.e. litli frændi á að koma í heiminn 11 maí, maður er nú orðinn soldið forvitinn að sjá hvernig hann lítur út en ég efast nú samt ekki annað en að hann sé langsætastur! Mamma er á leið á Reykjalund í nokkrar vikur svo við Hössi verðum að sjá um kotið, spennandi verður að sjá hvernig það mun ganga
Jæja, ætli þetta sé ekki barasta komið gott i bili, hafið það gott.
Aðalbjörg Gunnarsdóttir sem þráir ekkert heitar en að komaast í frí og fara líða örlítið betur!
Loksins kominn föstudagur :)
Yfir í annað og gleðilegra, nú er aðeins mánuður í litla prinsinn, a.m.k mánuður í settan dag, spurning hvað hann ákveður ða gera.Ég mæli með því að hann komi samt 10 maí. Þá eru öll krúttin fædd 10 einhvers mánaðar. Þ.e. Alma Ýr er fædd 10 október, Svanhildur er fædd 10 janúar og því væri alveg tilvalið að litli prins kæmi 10 maí. En það kemur svosem bara allt saman í ljós. Það verður nú gaman að fá að sjá hann og hafa hann í fanginu, nýfædd kríli eru svo sæt! Það sem meira er að nú er innan við mánuður í frí, það hefur kosti og galla, þ.e. brjálað að gera næstu vikur en styttist í frí
Glataði bloggarinn.
Kv. Aðalbjörg.
URRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR
Urrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
Fokking backspace takki á tövunni eyddi langri flottri færslu, nú er ég orðin svo pirr að ég nenni ekki að skrifa neitt aftur!!!!! ![]()
Gleðilega páska.
Skrifa síðar.
Aðalbjörg Gunnarsdóttir - Mega pirripú ![]()
Frábær föstudagur
Ég sit hér í drepleiðinlegum tíma og ákvað því að blogga smá. Loksins er að koma helgi!!! Vikan er annars búin að vera frekar róleg, hún hefur aðalega bara farið í skóla og vinnu. Ég er loksins komin í gang með að vinna í verkefnum og gleður það svakalega mikið enda einbeiting verið af skornum skammti. Svo er auðvitað alltaf stuð í vinnuni, enda frábærir krakkar og gott samstarfsfólk. Annars verður helgin nokkuð góð sýnisst mér en ég segi nánar frá því næst
Dásamlegur laugardagur og fínasta vika.
Eins og kom fram í síðustu færslu var svo planið um kvöldið að við Hössi færum rómó út að borða, í tilefni þess að við erum búin að vera saman í 2 ár. Þetta var nu rómó og fyndið í senn þessi ferð okkar á Caruso. Við byrjuðum á því að keyra um til að reyna fá stæði nálægt sem var ekki að ganga svo við lögðum svolítið langt frá, fatlaða stæðið sem næst var Caruso var upptekið, svo ég lagði í annað sem ég mundi eftir, en við þurftum þá að rölta smá spöl í rigningunni og vorum orðin 10 mín of seint, áttum sko pantað borð kl 7. Fyrir þá sem ekki vita þá er Caruso í gömlu húsi, aðgengið inn í húsið er 100% en aðgengið innandyra fær kannski ekki topp einkunn. Frekar þröngt er inn á staðnum auk þess sem slæmur gamaldags þröngur tréstigi liggur upp á næstu hæð þar sem meðal annars er setustofa, þar er t.d. fólki boðið að sitja og fá sér t.d gosglas eða vínglas meðan beðið er eftir borði, sé einhver bið. Jæja, við komum þarna 10 mín of seint, en er sagt að það sé svona 10 mínútna bið og er okkur þá vísað upp í setustofuna, við komumst nu alveg þangað upp en það tók smá tíma, þegar við vorum komin upp velti ég þvi mikið fyirr mér hvernig Hössa gengi að komast niður aftur, hafði minni áhyggjur af mér. Sá sem tók á móti okkur var mjög elskulegur og þótti mjög miður allt vesenið, sér í lagi þegar hann kom og sagði okkur að borðið væri tilbúið og Hössi settist niður og ýtti sér niður stigann á rassinum, mjög rómó eða þannig
Vikan er annars búin að vera bara ágæt. Ég er orðin lang sætust, fór í plokkun á mánudaginn og neglur í morgun. Það sem hefur að öðru leiti staðið upp úr í vikunni er að ég skellti mér í bíó á þriðjudaginn með Hrafnhildi, fórum að sjá myndin P.S. I LOVE YOU, hún var alveg dásamlega falleg, gleði og sorg í bland. Ég á bókina og er búin að lesa hana nokkrum sinnum og hlakkaði því mikið að sjá myndina þegar ég sá að hún væri að koma, aðalleikarinn var sjúklega sætur og einn annar leikari líka og Hilary Swank lék frábærlega og skilaði þessu hlutverki vel. Áðan komu svo Hilmar, Ólöf og Alma Ýr í heimsókn. Það var gaman að sjá sætustu frænku eins og alltaf! Hún var bara hress mest allan tímann, starði alveg á mann (örugglega að spá hvaða skrítna manneskja þetta væri, semsagt ég